Um Mannréttinda stofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum Alþingis og tók til starfa 1. maí 2025.
Stofnunin er óháð stjórnvöldum og starfar í samræmi við svokölluð Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna, sem eiga að tryggja sjálfstæði og hlutleysi mannréttindastofnana um allan heim.

Meginhlutverk stofnunarinnar
Meginhlutverk Mannréttindastofnunar Íslands er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi, eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá lýðveldisins, lögum og þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að.
Mannréttindastofnun vinnur að því að opinberir aðilar og einkaaðilar virði mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins.
Spurt & svarað
Kostar að leita til Mannréttindastofnunar Íslands?
Nei, öll ráðgjöf og upplýsingagjöf á vegum Mannréttindastofnunar er almenningi að kostnaðarlausu.
Tekur stofnunin við kvörtunum og úrskurðar í einstökum málum?
Mannréttindastofnun er ekki úrskurðaraðili og tekur ekki til meðferðar einstaklingsmál. Hins vegar veitum við leiðbeiningar og ráðgjöf um öll mál sem varða mannréttindi.
Erindi frá einstaklingum geta einnig veitt stofnuninni mikilvægar upplýsingar um stöðu mannréttindamála og orðið til þess að stofnunin taki mál til skoðunar eða komi ábendingum til viðeigandi aðila.
Hvað eru Parísarviðmiðin?
Parísarviðmiðin eru viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um sjálfstæðar innlendar mannréttindastofnanir. Þau fela í sér meginreglur og almenn skilyrði um hlutverk, stöðu og starfsemi mannréttindastofnana. Þau gera þá kröfu að stofnanirnar séu óháðar stjórnvöldum, hafi skýrt umboð í lögum, tryggan fjárhag og geti tjáð sig frjálst um ástand mannréttinda í viðkomandi landi.
Um vefinn
Framtíðaráform
Vefurinn er í vinnslu. Stefnt er að því að hér verði með tímanum að finna ýmsan fróðleik og hagnýtar upplýsingar um mannréttindi og starf stofnunarinnar.
Ábendingar um aðgengi
Mannréttindastofnun leggur höfuðáherslu á að vefurinn sé öllum aðgengilegur. Við værum þakklát fyrir allar ábendingar sem snúa að aðgengi. Senda má ábendingu í gegnum formið hér fyrir neðan.
Contact Us
Takk fyrir ábendinguna. Við munum skoða málið við fyrsta tækifæri.
Ekki gekk að senda skilaboðin. Reyndu aftur.