Mannréttindi eru meðfædd réttindi allra, óháð uppruna eða stöðu. Mannréttindi eru algild sem þýðir að þau eiga við um allt fólk, alls staðar.
Mannréttindi eru einnig óafsalanleg, sem þýðir að einstaklingur missir aldrei réttindi sín. Undir vissum kringumstæðum er þó hægt að takmarka sum réttindi, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.