Starfsemi og helstu verkefni

Starfsemi Mannréttindastofnunar Íslands er fjölbreytt og snertir allar hliðar samfélagsins. Við leggjum ríka áherslu á að vera málsvari mannréttinda, standa vörð um jafnrétti og tryggja að raddir allra hópa heyrist.

Helstu verkefni

Eftirlit og ráðgjöf

Eftirlit og ráðgjöf

Að fylgjast með stöðu mannréttinda á Íslandi og veita stjórnvöldum, Alþingi og öðrum aðilum óháða ráðgjöf um mannréttindamál.

Alþjóðlegar skuldbindingar

Alþjóðlegar skuldbindingar

Að hafa eftirlit með framkvæmd alþjóðlegra mannréttindasamninga og skila skýrslum til alþjóðlegra eftirlitsaðila.

Fræðsla og rannsóknir

Fræðsla & rannsóknir

Að efla þekkingu og skilning almennings, stjórnvalda og fyrirtækja á mannréttindum með því að hvetja til, stuðla að og taka þátt í fræðslu og rannsóknum.

Réttindagæsla fyrir fatlað fólk

Réttindagæsla fatlaðs fólks

 Að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks og leiðbeina fötluðu fólki og veita því viðeigandi stuðning svo það geti notið réttinda sinna.