Ráðgjafarnefnd
Ráðgjafarnefnd Mannréttindastofnunar Íslands hefur það mikilvæga hlutverk að styðja stofnunina í störfum sínum með ráðgjöf, upplýsingagjöf og umsögnum eftir því sem þörf krefur.
Mannréttindastofnun Íslands er meðal annars ætlað að vinna að því að byggja nokkurs konar brú á milli stjórnvalda og hagsmunaaðila á sviði mannréttinda. Er því mikilvægt að fjölbreyttur hópur félagasamtaka og annarra hagsmunaaðila komi að starfi stofnunarinnar.

Meginhlutverk stofnunarinnar
Meginhlutverk Mannréttindastofnunar Íslands er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi, eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá lýðveldisins, landslögum
nr. 88/2024 og þeim alþjóðasamningum sem Ísland hefur undirgengist.
Ráðgjafanefndin er skipuð af stjórn stofnunarinnar til þriggja ára í senn
Lögð er áhersla á að ráðgjafarnefndin endurspegli sem fjölbreyttastan hóp hagsmunaaðila.
Fulltrúar eftirfarandi tólf samtaka og stofnana voru skipaðir í nefndina árið 2025:
- Mannréttindastofnun Háskóla Íslands
- Rauði krossinn á Íslandi
- Íslandsdeild Amnesty International
- Barnaheill – Save the Children á Íslandi
- Kvenréttindafélag Íslands
- Landssamtakökin Þroskahjálp
- Samtökin '78
- ÖBÍ réttindasamtök
- Geðhjálp
- Umboðsmaður Alþingis
- W.O.M.E.N.– Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi
- Landssamband eldri borgara