75 ára afmæli Mannréttindasáttmála Evrópu
Þann 4. nóvember sl. fagnaði Mannréttindasáttmáli Evrópu 75 ára afmæli. Samþykkt hans markaði merkileg tímamót og upphaf nýrra tíma, þar sem hann var fyrsti bindandi alþjóðlegi mannréttindasamningurinn sem festi í sessi ákveðin grundvallarréttindi sem finna má í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Óhætt er að segja að sáttmálinn hafi verið mikilvægt leiðarljós og haft víðtæk og stefnumarkandi áhrif á vernd mannréttinda, bæði hér á landi og í allri Evrópu.
Áhyggjur mannréttindastofnana á Norðurlöndum
Í tilefni af afmæli Mannréttindasáttmálans gáfu allar mannréttindastofnanir á Norðurlöndum frá sér sameiginlega yfirlýsingu, þar sem settar eru fram áhyggjur okkar af því bakslagi sem hefur átt sér stað þegar kemur að viðhorfum til mannréttinda og þeirra alþjóðlegu stofnana sem settar voru á fót til að verja þau og vernda.
Stofnanir á borð við Sameinuðu þjóðirnar og Evrópuráðið hafa frá upphafi staðið vörð um lýðræðið og réttarríkið og gegnt lykilhlutverki við að tryggja mannréttindi einstaklinga og vernda þá fyrir geðþóttaákvörðunum yfirvalda. Nú eru þessar mikilvægu alþjóðlegu stofnanir undir áður óþekktum þrýstingi, jafnvel frá ríkjum sem áður studdu þær af festu.
Endurspeglast þetta meðal annars í þeirri orðræðu sem víða hefur verið viðhöfð um Mannréttindadómstól Evrópu, sem er til þess fallin að grafa undan trausti til dómstólsins og um leið veikja þá mikilvægu vernd sem hann hefur veitt borgurum Evrópu í áratugi. Að sjálfsögðu er dómaframkvæmd dómstólsins ekki hafin yfir gagnrýni, en sú gagnrýni þarf að vera málefnaleg og má ekki vera til þess fallinn að grafa undan trausti til dómstólsins eða sjálfstæði hans.
Mannréttindastofnanir á Norðurlöndum hvetja stjórnvöld til að standa með alþjóðlegum stofnunum og verja þau grunngildi sem þær hvíla á og þau ævarandi sannindi að mannréttindi eru algild réttindi okkar allra – alltaf og alls staðar.
Yfirlýsinguna í heild má lesa hér að neðan
Einkenni óvissutíma eru að mörk færast til. Ekki aðeins landfræðileg, heldur líka lagaleg, siðferðileg og pólitísk.
Orð sem eitt sinn sameinuðu verða skyndilega umdeild.
Stofnanir sem lengi hafa staðið vörð um stöðugleika og
öryggi sæta þrýstingi. Grundvallarmannréttindi sem áður voru
almennt viðurkennd og þóttu sjálfsögð eru dregin í efa. Það
sem var talið sjálfgefið er ekki lengur óumdeilt.
Í dag beinist gagnrýnin einnig að mannréttindunum sjálfum.
Frjálslyndar lýðræðisstjórnir eru á undanhaldi en sífellt fleiri
einræðisleg stjórnvöld sækja í sig veðrið.
Alþjóðlegt réttarkerfi er undir áður óþekktum þrýstingi, jafnvel
frá ríkjum sem áður studdu það af festu. Og grundvallarstoðir
sjálfs Evrópuráðsins, sem varð til í þeim tilgangi að tryggja frið
og stöðugleika í Evrópu, sæta atlögum frá eigin aðildarríkjum.
Í dag takast á öfl sem annars vegar vilja styðja við frið,
stöðugleika og hið alþjóðlega réttarkerfi og hins vegar þau
sem tala gegn því.
Mikilvægt er að bæði stjórnvöld og mannréttindastofnanir á
Norðurlöndum taki þessari þróun alvarlega. Það sama á við
um norræn samfélög, sem búa við vaxandi álag, og alþjóðastofnanir. Saman mynda þau það mikilvæga öryggisnet sem verndar réttindi fólks á Norðurlöndum daglega.
Með öðrum orðum: Við þurfum öll að horfa inn á við og
viðurkenna að nú reynir á. Nú þurfum við að vera reiðubúin til
að standa með alþjóðlega réttarkerfinu.
Umræðan er tímabær af nokkrum ástæðum. Við minnumst
75 ára afmælis Mannréttindasáttmála Evrópu, sem hefur í áratugi og í takt við samfélagsþróun verndað mannréttindi einstaklinga. Dómar dómstólsins hafa styrkt vernd tjáningarfrelsis Evrópubúa, réttindi hinsegin fólks og viðurkenningu á því hvað telst fjölskylda í nútíma samfélagi.
Við fögnum einnig 80 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna, kerfis
sem reis á grunni alþjóðlegrar samvinnu og sameiginlegs vilja
til friðar og samheldni eftir seinni heimsstyrjöld. Þetta kerfi
sætir einnig þrýstingi, bæði af hálfu stórvelda, sem láta valdið
ganga fyrir réttinum, og lýðræðislegra stjórnvalda, sem sum
hver líta á alþjóðasamninga sem vandamál fremur en vörn
gegn mannréttindabrotum. Það hlýtur að vekja áhyggjur.
Þessi tímamót minna ekki aðeins á fortíðina heldur á
ástæðurnar fyrir því að ríki okkar byggðu upp sameiginlegar
stofnanir, þau vissu að varanlegur friður og öryggi byggja ekki
á valdajafnvægi einu saman heldur þarf traustan réttargrundvöll, sterkar stofnanir og sameiginlegar leikreglur.
Evrópuráðið og Mannréttindasáttmáli Evrópu voru fyrstu hornsteinarnir í vegferð Evrópu í átt að friði og stöðugleika. Í 75 ár hafa þau orðið til þess að sameina fyrrverandi andstæðinga,
endurreisa réttarkerfi, styrkja lýðræði og vernda borgara
gegn geðþóttaákvörðunum stjórnvalda. Þau hafa gert Evrópu
stöðugri, öruggari og mannúðlegri.
En sú skipan sem hefur þjónað okkur svo vel er ekki lengur óumdeild. Of oft er kerfi Sameinuðu þjóðanna hindrað í að
bregðast við. Bandaríkin hafa dregið sig frá lykilstofnunum á sviði mannréttinda. Ungverjaland hafnar nú Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Kína og Rússland grafa undan eftirlitskerfum og lama Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Og hér í Evrópu mætir Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg
vaxandi vantrausti, jafnvel frá ríkjum sem hafa notið verndar
hans um áratugaskeið.
Við, sem innlendar mannréttindastofnanir Danmerkur, Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands og Íslands, höfum miklar áhyggjur af
þessari þróun. Þegar stofnanir sem verja mannréttindi veikjast,
glatast ekki aðeins réttarkerfi heldur líka sá stöðugleiki sem
friður, öryggi og velgengni okkar byggja á.
Því ættu Norðurlöndin nú að standa föst fyrir. Ef raunverulegur
vilji er til að endurskoða Mannréttindasáttmálann eða dómstólinn, ber að gera það innan frá, með samtali og samstarfi
aðildarríkja. Ekki með hótunum um úrsögn eða aðgerðaleysi
gagnvart niðurstöðum dómstólsins, eins og sést hefur í ríkjum
með einræðislegu stjórnarfari. Gagnrýni þeirra er yfirskin til að
veikja stoðir réttarríkisins. Lýðræðið verður ekki varið með því
að brjóta niður þær stofnanir sem halda því uppi.
Norðurlöndin, sem fámenn og opin samfélög, hafa sérlega
mikla hagsmuni af því að sterkum og reglubundnum
stöðugleika á alþjóðavettvangi sé við haldið. Þegar réttindi
víkja fyrir valdi eru það ekki stórveldin sem gjalda þess, heldur
þau minni.
Fyrir Danmörku, Svíþjóð, Noreg, Finnland og Ísland eru
mannréttindi, alþjóðalög og alþjóðastofnanir ekki einungis
hugmyndafræði heldur raunveruleg trygging fyrir öryggi. Það
er þetta sem veitir rödd okkar vægi, einkum í samskiptum
við mun stærri ríki. Án öflugra alþjóðlegra stofnana eru
Norðurlöndin berskjaldaðri.
Mannréttindi eru ekki pólitískt val eftir hentugleika. Þau eru
hluti af öryggisneti Evrópu, sameiginleg vörn okkar gegn geð-
þótta og pólitísku hnignunarástandi. Vilji til umbóta á ekki
að felast í árásum heldur ættu Norðurlöndin þvert á móti að
beita vægi sínu til að styrkja þau réttarkerfi sem fyrir eru, ekki
síst stofnanir Evrópuráðsins.
Núna þurfum við að sýna að Norðurlönd geti enn verið sú
rödd á heimsvísu sem heldur fast við algild réttindi og öryggi
einstaklinga. Það krefst hugrekkis að standa fastur á sínu þegar
aðrir efast. Og það krefst forystu að nota rödd sína þegar mest
á reynir.
Næstu ár munu skera úr um hvort alþjóðlegt samstarf styrkist
eða Evrópa sundrist enn frekar. Því ber norrænum stjórnvöldum
að tala skýrt og standa vörð um þær stofnanir sem hafa í 75
ár gert þessa heimsálfu frjálsari, réttlátari og stöðugri og þau
grundvallarréttindi sem við viljum verja.
Undir yfirlýsinguna skrifa
Louise Holck, framkvæmdastjóri, Institut for Menneskerettigheder (Danmörku), Fredrik Malmberg, framkvæmdastjóri, Institutet för mänskliga rättigheter (Svíþjóð), Kai Spurkland, framkvæmdastjóri Norges institusjon for menneskerettigheter (Noregi), Jarna Petman, framkvæmdastjóri Human Rights Centre (Finnlandi), Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri, Mannréttindastofnun Íslands (Íslandi).