Alþjóðlegur dagur mannréttinda
Í dag, 10. desember, er alþjóðlegur dagur mannréttinda, en þennan dag árið 1948 var Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna samþykkt.
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna varð til úr því uppgjöri sem átti sér stað í kjölfar síðari heimstyrjaldarinnar þegar þjóðir heims voru staðráðnar í að hörmungar stríðsins mættu aldrei endurtaka sig. Yfirlýsingin markaði mikilvæg tímamót, en með henni var algildi mannréttinda í fyrsta sinn viðurkennt á alþjóðlegum vettvangi.
Þó að yfirlýsingin sé ekki formlega bindandi hefur hún veitt innblástur og verið leiðarljós við þróun mannréttindareglna út um allan heim og grunnur að fjölmörgum alþjóðlegum mannréttindasamningum.
Með yfirlýsingunni voru vörðuð þau grunngildi að mannleg reisn og jöfn og óafsalanleg réttindi væru undirstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum.
Í tilefni dagsins skrifaði framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands, Margrét María Sigurðardóttir, grein þar sem hún fjallar meðal annars um mikilvægi þess að við vinnum saman að því að halda þessum gildum á lofti og stöndum vörð um þá reisn og þá verðleika sem eru sérhverri manneskju eðlislæg. Greinina í heild sinni má lesa hér.