Bréf um aðlögun málsmeðferðar
Mannréttindastofnun Íslands hefur sent bréf á ýmsa úrskurðaraðila, og aðra aðila sem taka við kvörtunum, um aðgengi og aðlögun málsmeðferðar.
Markmiðið með bréfinu er að safna upplýsingum um hvort og þá til hvaða aðgerða hafi verið gripið til að tryggja að allir einstaklingar hafi jafna möguleika til að nota þær kæru- og kvörtunarleiðir sem eru til staðar, þar á meðal fatlað fólk, börn og fólk af erlendum uppruna.
Svörin verða nýtt í leiðbeiningar sem stofnunin vinnur nú að um aðgengi og aðlögun málsmeðferðar.
Jafnt aðgengi að réttinum
Í bréfinu er bent á að það sé grundvallarþáttur í vernd mannréttinda að tryggja að allir einstaklingar hafi jöfn og raunhæf tækifæri til að leita réttar síns. Er því mikilvægt að tryggja að kæruleiðir og önnur úrræði mismuni ekki einstaklingum, með beinum eða óbeinum hætti, svo sem á grundvelli fötlunar, aldurs eða uppruna.
Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem nýlega var lögfestur hér á landi, skal tryggja fötluðu fólki raunhæfan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs. Með aðlögun málsmeðferðar er átt við ráðstafanir sem tryggja að einstaklingur geti tekið virkan þátt í málsmeðferð til jafns við aðra, svo sem með því að tryggja að upplýsingar séu á aðgengilegu og skiljanlegu formi, tekið sé mið af mismunandi samskiptaleiðum og eftir atvikum veita viðeigandi stuðning.