Bréf um valdbeitingu lögreglu

22. maí 2026

Mannréttindastofnun Íslands hefur sent erindi á ríkislögreglustjóra til að spyrjast fyrir um verklag lögreglu við valdbeitingu og notkun vopna.

 

Hvers kyns valdbeiting lögreglu felur í sér í sér íþyngjandi skerðingu á mannréttindum einstaklinga og þarf því að tryggja að reglur og framkvæmd lögreglu gangi ekki lengra en brýna nauðsyn ber til og séu í fullu samræmi við mannréttindi. Á það ekki síst við í ljósi þeirra áhrifa sem beiting valds hefur á öryggistilfinningu borgaranna og traust þeirra til lögreglu. Mikilvægt er að athafnir lögreglu komi ekki í veg fyrir að fólk nýti borgarleg réttindi sín, þar á meðal tjáningarfrelsi.

 

Mannréttindastofnun óskaði eftir að fá sendar þær verklagsreglur sem hafa verið settar um notkun rafvarnarvopna. Einnig var óskað eftir öðrum verklagsreglum eða leiðbeiningum sem kunna að hafa verið settar um annars konar valdbeitingu, þar á meðal notkun hrákagríma.

 

Jafnframt var óskað eftir upplýsingum um það hvort einhverjar sérstakar verklagsreglur eða leiðbeiningar hafi verið gefnar út varðandi valdbeitingu og notkun vopna gagnvart einstaklingum í viðkvæmri stöðu, þar á meðal fötluðu fólki, fólki með geðrænan vanda og börnum. Að lokum var óskað eftir upplýsingum um hvort einhverjar reglur eða viðmið séu til staðar um störf sérsveitarinnar við slíkar aðstæður.

 

Bréfið í heild sinni má nálgast hér.