Evrópuvika gegn rasisma
Í dag er alþjóðadagur gegn rasisma. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi þennan dag til minningar um þá 69 einstaklinga sem myrtir voru 21. mars 1960 vegna þátttöku í mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku.
Á þessum tíma á hverju ári fer fram Evrópuvika gegn rasisma sem miðar að því að vinna gegn kynþáttafordómum, þröngsýni og þjóðernishyggju í Evrópu. Markmiðið er að byggja Evrópusamfélag víðsýni og samkenndar þar sem öll eru jöfn, óháð útliti og uppruna.
Birtingarmyndir kynþáttamisréttis eru ólíkar eftir löndum og menningarsvæðum. Fjallað er um stöðuna á Íslandi í nýlegri skýrslu nefndar Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (ECRI), sem birt var 5. mars sl. Umfjöllunarefni skýrslunnar er framkvæmd Íslands á tilmælum nefndarinnar frá árinu 2023. Nefndin tekur fram að ýmis jákvæð skref hafi verið stigin hér á landi á undanförnum árum, svo sem þegar kemur að fræðslu til lögreglu og ákæruvalds. Hins vegar bendir nefndin á að enn skorti upp á heildstæðan og opinberan gagnagrunn um hatursorðræðu og hatursglæpi. Stjórnvöld eru auk þess hvött til þess að efla enn frekar vitundarvakningu um mismununarlöggjöfina og tryggja að fræðslan nái til þeirra hópa sem eru líklegastir til að verða fyrir mismunun. Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér á vef Evrópuráðsins.