Fyrsta ársskýrsla stofnunarinnar
Mannréttindastofnun Íslands hefur gefið út sína fyrstu ársskýrslu fyrir starfsárið 2025. Í skýrslunni er farið yfir hlutverk stofnunarinnar og verkefni ársins, auk þess sem þar er fjallað um mál sem komu á borð stofnunarinnar á árinu og varða framkvæmd mannréttindamála.
Eðli málsins samkvæmt var umfangsmesta verkefni fyrsta starfsársins að koma stofnuninni á fót og móta innviði og verklag.
Lögð var rík áhersla á fræðslu og fundi með hagaðilum, meðal annars til að kynna stofnunina og hlutverk hennar. Þá var forgangsmál að tryggja að réttindagæsla fyrir fatlað fólk gæti tekið til starfa innan stofnunarinnar.
Í ársskýrslunni er einnig farið yfir nokkur mikilvæg mál sem komu á borð stofnunarinnar árið 2025 og varða framkvæmd mannréttindamála almennt. Þar er meðal annars fjallað um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, frelsissviptingu og beitingu nauðungar, aðgengi að rafrænni þjónustu og stöðu tilmæla sem Ísland hefur fengið í allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála.
Hægt er að lesa ársskýrsluna í heild sinni hér:
Ársskýrsla Mannréttindastofnunar Íslands 2025