Heimsókn á Austurland
Dagana 26.-28. október heimsóttu fulltrúar Mannréttindastofnunar Íslands og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) Austurland.
Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna hlutverk stofnananna, efla tengsl við hagaðila á svæðinu og afla upplýsinga um aðstæður fatlaðs fólks og framkvæmd réttinda þess á svæðinu.
Í ferðinni áttu fulltrúar stofnunarinnar fundi með fjölmörgum aðilum, þar á meðal fjölskyldusviðum Múlaþings og Fjarðabyggðar, lögreglu, sýslumanni, bæjarstjórum, félagsmálastjórum og notendaráði Múlaþings. Einnig voru heimsótt Stólpi, Andrúm, búsetuþjónustan á Egilsstöðum sem og íbúðarkjarninn Skáli á Reyðarfirði.

Fundur Mannréttindastofnunar Íslands og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) með stjórnendum félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Múlaþings, bæjarstjóra Múlaþings og fulltrúum félagsmálanefndar.
Markmið heimsókna í íbúðarkjarna er bæði að hitta þjónustunotendur og ræða við þá um reynslu þeirra og aðstæður, og jafnframt að kynnast starfsemi þjónustuveitenda sem Mannréttindastofnun hefur eftirlit með. Heimsóknin veitti mikilvæga innsýn í aðstæður á svæðinu og þær áskoranir sem sveitarfélög standa frammi fyrir við að tryggja aðgengi, þjónustu og stuðning við fatlað fólk.
Þá kynnti GEV jafnframt nýja reglugerð um innra eftirlit þjónustuveitenda. Samkvæmt reglugerðinni ber þjónustuveitendum að hafa skipulagt eftirlit með eigin starfsemi, skrá niðurstöður þess og fylgja eftir nauðsynlegum úrbótum.
Fulltrúar Mannréttindastofnunar Íslands á opnum fundi á Austurlandi.
Haldinn var opinn kynningarfundur með GEV þar sem almenningi gafst kostur á að fræðast um starfsemi beggja stofnana, spyrja spurninga og ræða málefni sem þeim eru hugleikin. Þar fóru fram gagnlegar og líflegar umræður sem veittu mikilvæga innsýn í reynslu og sjónarmið fólks á svæðinu.
Í heimsókninni komu fram ýmis sjónarmið um aðgengi að þjónustu, samþættingu þjónustukerfa, húsnæðisaðstæður og atvinnumöguleika fatlaðs fólks á Austurlandi. Mannréttindastofnun mun nýta þær upplýsingar sem safnað var í ferðinni við áframhaldandi eftirlit, greiningu og skýrslugjöf. Heimsóknin undirstrikar mikilvægi þess að eiga reglulegt samtal við íbúa, þjónustunotendur, sveitarfélög og þjónustuveitendur um stöðu mannréttinda um allt land. Þannig skapast betri grunnur til að stuðla að því að allir geti notið réttinda sinna til jafns við aðra, óháð búsetu.