IDAHOBIT dagurinn
Í dag, 17. maí, er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks (IDAHOBIT – International Day Against Homophobia, Biphobia, Intersex Discrimination and Transphobia).
Mikilvæg tímamót urðu þennan dag árið 1990, en þá fjarlægði Alþjóðaheilbrigðisstofnunin samkynhneigð af lista sínum yfir geðsjúkdóma.
Frá árinu 2004 hefur dagurinn verið nýttur til þess að fagna fjölbreytileikanum og vinna gegn hvers kyns mismunum, ofbeldi og fordómum gegn hinsegin fólki.
Öll eigum við að njóta sömu mannréttinda án mismununar, þar á meðal á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Réttindi hinsegin fólks eru almennt vel tryggð á Íslandi, en nýlega var tilkynnt að Ísland héldi þriðja sætinu á Regnbogakorti ILGA-Europe, samtaka hinsegin fólks í Evrópu og fyrsta sætinu á réttindakorti transfólks í Evrópu. Enn er þó svigrúm til úrbóta, en í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks má finna ýmsar aðgerðir sem miða að því að bæta réttindi hinsegin fólks.
Þrátt fyrir góðan árangur hefur Mannréttindastofnun verulegar áhyggjur af því bakslagi sem hefur orðið í viðhorfum til hinsegin fólks, hér á landi og annars staðar í heiminum. Er því sérstaklega brýnt að við stöndum vörð um mannréttindi hinsegin fólks, fögnum fjölbreytileikanum og vinnum gegn hvers kyns fordómum - í dag og alla daga.