Lögfesting samningsins um réttindi fatlaðs fólks

12. nóvember 2025

Alþingi samþykkti í dag frumvarp sem felur í sér lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 


 Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra. Samningurinn útfærir þau efnislegu réttindi sem finna má í öðrum mannréttindasamningum með þeim hætti að tryggt sé að fatlað fólk fái notið þeirra í reynd.


Ísland undirritaði samninginn árið 2007 og fullgilti hann árið 2016. Með fullgildingu samningsins skuldbundu íslensk stjórnvöld sig til að virða og tryggja réttindi fatlaðs fólks í framkvæmd.


Lögfestingin bindur í lög þessar skyldur stjórnvalda til að raungera þau réttindi sem kveðið er á um samningum og gerir einstaklingum kleift að byggja beint á ákvæðum hans fyrir innlendum dómstólum.


Mannréttindastofnun fagnar þessum mikilvæga áfanga og vonar að lögfestingin verði til þess að auka vitund um og virðingu fyrir réttindum fatlaðs fólks.