Heimsókn á Vestfirði
Starfsfólk Mannréttindastofnunar Íslands fór í heimsókn á Vestfirði dagana 21. til 23. september 2026. Með í för var Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV), sem kynnti starfsemi sína.
Haldinn var opinn kynningarfundur í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði þar sem starfsemi Mannréttindastofnunar Íslands, réttindagæsla fatlaðs fólks og hlutverk GEV voru kynnt. Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður um mannréttindi, málefni fatlaðs fólks og ýmis önnur samfélagsmál.
Þá kynnti starfsfólk Mannréttindastofnunar sér búsetuþjónustu og skammtímadvöl hjá velferðarsviði Ísafjarðarbæjar, heimsótti Hæfingarstöðina Hvestu, áttu fund með notendaráði fatlaðs fólks auk þess að halda kynningarfund fyrir fatlað fólk sem nýtir þjónustu á svæðinu. Starfsmenn stofnunarinnar heimsóttu einnig Bolungarvík og áttu fundi með fulltrúum sveitarfélagsins og búsetuþjónustu innan þess.
Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands, heimsótti embætti lögreglustjórans á Ísafirði þar sem rætt var um starfsemi stofnunarinnar, mögulega samstarfsfleti og ýmis mannréttindatengd málefni. Einnig fundaði hún með fulltrúum Strandabyggðar, Reykhólahrepps og Vesturbyggðar og kynnti hlutverk Mannréttindastofnunar Íslands og réttindagæslu fatlaðs fólks.
Markmið ferðarinnar var að efla tengsl, kynna starfsemi stofnunarinnar, hlusta á reynslu og sjónarmið fólks um landið og afla upplýsinga sem nýtast í eftirliti stofnunarinnar. Ferðin er sú fyrsta í röð kynningarferða Mannréttindastofnunar í alla landshluta og er mikilvægur þáttur í því að koma stofnuninni á framfæri. Þá er gert ráð fyrir að Mannréttindastofnun muni árlega gera sér styttri ferðir í alla landshluta til að gæta samráðs og fylgja eftir ráðleggingum og samtölum. Starfsfólk Mannréttindastofnunar þakkar fyrir hlýjar móttökur og góð samtöl.