Mannréttindi í framkvæmd á málþingi ÖBÍ

10. nóvember 2026

ÖBÍ stóðu fyrir málþinginu Mannréttindi í framkvæmd í Hörpu 9. nóvember síðastliðinn í tilefni þess að eitt ár var liðið frá því að Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 

Á málþinginu komu saman fulltrúar stjórnvalda, háskólasamfélagsins og félagasamtaka til að ræða stöðu samningsins og framkvæmd réttinda fatlaðs fólks á Íslandi. Meðal þeirra sem tóku til máls voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Markus Schefer, einn fremsti sérfræðingur heims um samninginn. 

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ. Mynd: ÖBÍ

Eiríkur Smith, sérfræðingur í réttindum fatlaðs fólks hjá Mannréttindastofnun Íslands, flutti erindi á málþinginu þar sem hann fjallaði um ábyrgð stjórnvalda á framkvæmd samningsins og hlutverk stofnunarinnar við sjálfstætt eftirlit með henni. Hann lagði áherslu á að eftirlitið þurfi að byggjast á viðurkenndum aðferðum, traustum gögnum og skýrum réttindaviðmiðum, með fullri þátttöku fatlaðs fólks og samtaka þess. Að erindi loknu tók hann jafnframt þátt í pallborðsumræðum ásamt Markus Schefer og Kára Hólmari Ragnarssyni.

Frá vinstri: Eiríkur Smith, Kári Hólmar Ragnarsson, Markus Schefer og Alma Ýr Ingólfsdóttir. Mynd: ÖBÍ