Vefurinn er í vinnslu
Réttindagæsla
fyrir fatlað fólk
Meginhlutverk réttindagæslunnar er að hafa eftirlit með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því, eftir þörfum, viðeigandi stuðning svo það geti notið réttinda sinna.

Hvað gerir réttindagæslan?
Helstu verkefni réttindagæslunnar eru eftirfarandi:
- Að eiga í samskiptum við einstaklinga og stofnanir og stuðla þannig að aukinni vitund um réttindi og inngildingu fatlaðs fólks
- Að leiðbeina einstaklingum og styðja þá við að ná fram réttindum sínum
- Að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks og stuðla að úrbótum svo öll fái notið réttinda sinna í reynd
Hvernig aðstoðar réttindagæslan einstaklinga?
Með leiðbeiningum, til dæmis um:
- Hvar og hvernig sé hægt að óska eftir þjónustu sem getur stutt viðkomandi og hann á rétt á að fá
- Hvaða kæru- og kvörtunarleiðir séu í boði og hvernig fólk geti nýtt sér þær
Með samskiptum við stjórnvöld, til dæmis:
- Með ábendingum til þeirra sem bera ábyrgð á eftirliti með þjónustu
- Með því að koma á framfæri mannréttindamiðuðum sjónarmiðum þegar þess er talin þörf
Hverjir geta haft samband?
- Einstaklingar sem telja að brotið sé á þeim
- Aðrir sem vilja koma fram ábendingu um að brotið sé á réttindum fatlaðs einstaklings
- Öll sem þarfnast leiðbeininga eða upplýsinga sem varða réttindi fatlaðs fólks
Contact Us
Takk fyrir að hafa samband.
Ekki gekk að senda skilaboðin. Reyndu aftur