Samtal um mannréttindi og hlutverk Mannréttindastofnunar Íslands
Þann 12. nóvember stóð Mannréttindastofnun Íslands fyrir opnum umræðufundi um hlutverk stofnunarinnar og stöðu mannréttinda á Íslandi. Markmið fundarins var að eiga samtal um hlutverk Mannréttindastofnunar sem brúar milli stjórnvalda og samfélagsins í því sameiginlega verkefni að efla og vernda mannréttindi á Ísland.
Í pallborðinu sátu Nína Helgadóttir frá Rauða krossinum, Anna Lúðvíksdóttir frá Amnesty International á Íslandi, Bylgja Árnadóttir frá utanríkisráðuneytinu, Guðni Olgeirsson frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Margrét María Sigurðardóttir frá Mannréttindastofnun Íslands. Umræðurnar endurspegluðu fjölbreytt sjónarhorn þeirra sem starfa að mannréttindamálum bæði í stjórnsýslu og hjá frjálsum félagasamtökum.
Í umræðunum kom skýrt fram hversu mikilvægt skref stofnun Mannréttindastofnunar Íslands er fyrir íslenskt samfélag. Bent var á að um árabil hafi verið kallað eftir sjálfstæðri innlendri mannréttindastofnun og að stofnunin gegni lykilhlutverki við að fylgjast með stöðu mannréttinda, miðla þekkingu og stuðla að framþróun á sviðinu.
Þátttakendur lögðu jafnframt áherslu á að stofnunin gegni mikilvægu hlutverki sem brú milli stjórnvalda og borgaralegs samfélags. Bent var á að félagasamtök búi yfir verðmætri reynslu og þekkingu á stöðu ýmissa viðkvæmra hópa og að virkt samtal við þau sé forsenda árangursríks mannréttindaeftirlits. Þá þurfi að huga að þeim hópum sem mögulega eigi sér engan málsvara eða félagasamtök, því íslensk samfélagsgerð hafi tekið miklum breytingum undanfarin ár.
Miklar umræður urðu einnig um mannréttindafræðslu og nauðsyn þess að auka þekkingu á mannréttindum meðal almennings. Sérstaklega var rætt um mikilvægi fræðslu í skólum og um hlutverk rannsókna og gagnreyndrar þekkingar við að styrkja umræðu um mannréttindi.
Þátttakendur lýstu jafnframt áhyggjum af þeirri þróun sem víða sést erlendis þar sem stuðningur við mannréttindi og alþjóðlegt mannréttindasamstarf hefur veikst. Í því samhengi var undirstrikað að mikilvægt sé að halda áfram að efla mannréttindavitund, byggja umræðu á rannsóknum og staðreyndum og stuðla að uppbyggilegu samtali um þau gildi sem mannréttindi grundvallast á.
Mannréttindastofnun Íslands þakkar öllum þeim sem sóttu fundinn og tóku þátt í umræðunum fyrir mikilvægt framlag. Slík samtöl, þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast, eru mikilvægur þáttur í því að byggja upp öflugt starf í þágu mannréttinda.