Mannréttindastofnun Íslands skilaði í júlí 2026 skýrslu til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna vegna fjórðu allsherjarúttektarinnar á stöðu mannréttinda á Íslandi (Universal Periodic Review, UPR). Úttektin á Íslandi fer fram í janúar 2027.
Í skýrslunni er fjallað um ýmis mikilvæg mannréttindamál og settar fram tillögur til úrbóta. Meðal þess sem tekið er til umfjöllunar eru mismunun og hatursorðræða, aðgengi að réttlátri málsmeðferð, réttindi fatlaðs fólks og barna, málefni innflytjenda og flóttafólks, kynbundið ofbeldi og mansal, umhverfismál og mannréttindi í atvinnulífinu.
Skýrslan var unnin í samráði við ráðgjafarnefnd Mannréttindastofnunar og byggir jafnframt á þátttöku stofnunarinnar í samráðsfundum með stjórnvöldum og hagaðilum, þar á meðal ungmennaráðum.
Skýrsluna má nálgast hér á ensku: Skýrsla Mannréttindastofnunar vegna fjórðu allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda á Íslandi
14. júlí 2026

Formál
Útgefandi / Höfundur: