Valfrjáls bókun við Barnasáttmálann
Mannréttindastofnun Íslands og umboðsmaður barna sendu í gær erindi til dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Þriðja valfrjálsa bókunin kveður á um sérstaka kvörtunarleið sem gerir börnum og fulltrúum þeirra kleift að leita til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins ef þau telja brotið á réttindum sínum samkvæmt Barnasáttmálanum.
Í erindinu er skorað á dómsmálaráðherra að vinna að því að bókunin verði fullgilt sem allra fyrst. Ísland fullgilti nýlega sambærilega bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, auk þess sem Ísland er þegar aðili að ýmsum sambærilegum kvörtunarleiðum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Börn eru sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og er því erfitt að sjá rökin fyrir því að þeim sé ekki veitt sambærilegt tækifæri og öðrum til að leita réttar síns.
Bréfið í heild sinni má nálgast hér.