Valfrjáls bókun við SRFF
9. júní 2026
Mannréttindastofnun fagnar því að Ísland hafi fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF).
Valfrjálsa bókunin gerir einstaklingum og hópum einstaklinga kleift að kvarta til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Taki nefndin málið til meðferðar gefur hún frá sér álit hvort brotið hafi verið gegn samningnum.
Nánar um bókunina
Hver getur kvartað til nefndarinnar?
- Einstaklingar eða hópar einstaklinga sem telja brotið á réttindum sínum samkvæmt SRFF
Hver eru helstu skilyrði þess að nefndin taki mál til meðferðar?
- Kvörtun verður að varða brot á þeim réttindi sem kveðið er á um í SRFF
- Þau úrræði sem eru í boði samkvæmt íslenskum lögum verða að vera fullreynd, t.d. með því að fara með málið fyrir íslenska dómstóla
- Nefndin tekur ekki fyrir kvartanir ef sama mál hefur þegar verið tekið fyrir af nefndinni eða hefur verið lagt fyrir annan alþjóðlegan úrskurðaraðila, svo sem Mannréttindadómstól Evrópu
- Eingöngu er hægt að kvarta vegna brota sem áttu sér stað eftir að valfrjálsa bókunin tók gildi eða vegna brota sem héldu áfram eftir gildistöku bókunarinnar þó þau hafi hafist fyrir þann tíma
Hvað gerist ef nefndin tekur mál til meðferðar?
- Nefndin gefur út óbindandi álit um hvort brotið hafi verið gegn SRFF
- Ef nefndin telur um brot að ræða þurfa stjórnvöld að veita nefndinni upplýsingar um hvernig þau ætli sér að bregðast við álitinu